Fotbolti.net
21.07.06 - 16:15
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Bresciano til Palermo (Staðfest)

Á leiðinni til Palermo

Á leiðinni til Palermo

Canon

Mynd: Getty Images

Ástralski landsliðsmaðurinn Mark Bresciano hefur gengið í raðir Palermo frá Parma í skiptum fyrir sóknarmanninn Igor Budan og Maurizio Ciaramitaro fara í hina áttina á láni með möguleika á sölu.
Bresciano, sem er 26 gamall, kom frá Empoli árið 2002 og hefur síðan þá spilað 123 leiki fyrir félagið. Hann spilaði mjög vel með Áströlum á HM og mun án efa styrkja Palermo.

Það er því greinilegt að Palermo ætla sér stóra hluti á næsta tímabili en Bresciano er þriðji miðjumaðurinn sem þeir fá til félagsins í sumar, enda munu þeir taka þátt í undankeppni Meistaradeildarinnar.

Áður höfðu þeir fengið hægri kantmanninn Stefano Aimo Diana frá Sampdoria og Fabio Simplicio sem kemur einmitt líka frá Parma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.