Fotbolti.net
21.07.06 - 22:09
Magnús Már Einarsson

Garðar Jóhannsson úr KR í Val (Staðfest)

Baldur Aðalsteinsson og Garðar Jóhannsson eru nú orðnir liðsfélagar.

Baldur Aðalsteinsson og Garðar Jóhannsson eru nú orðnir liðsfélagar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Framherjinn Garðar Jóhannsson gekk í dag til liðs við Val frá KR og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning við Hlíðarendaliðið.
,,Það er fínt að fá tilbreytingu og komast að spila. Ég hef ekki verið að spila mikið," sagði hinn 26 ára gamli Garðar við Fótbolti.net í kvöld aðspurður út í félagaskiptin.

Garðar hefur ekki byrjað oft inn á hjá KR í sumar en hann hefur ekki ennþá komist á blað í Landsbankadeildinni í þeim níu leikjum sem hann hefur spilað. Þessi fyrrum framherji Stjörnunnar fær það verkefni að fylla skarð Garðars Gunnlaugssonar sem er á leið til Norrköping í næstu viku.

,,Er ekki ágætt að fá nýjan Garðar? Þá þarf til dæmis bara einungis að breyta smá í kennitölunum hvað varðar leikskýrslur," sagði Garðar og hló en hann er kominn með leikheimild hjá Val og getur því leikið með liðinu gegn Viking í VISA-bikarnum á sunnudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.