21.07.07 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
David Navarro til Mallorca á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valencia hafa samþykkt að lána varnarmanninn David Navarro til Real Mallorca. Navarro mun vera á láni alla næstu leiktíð hjá félaginu.
Navarro sem er 27 ára gamall var dæmdur í sex mánaða keppnisbann í mars síðastliðnum.
Navarro hljóp inn á völlinn í leik Valencia og Inter í Meistaradeild Evrópu eftir að leik lauk og kýldi Nicolas Burdisso leikmann Inter sem nefbrotnaði í kjölfarið. Navarro tók því næst á sprett út af vellinum með Julio Cruz og Ivan Cordoba leikmenn Inter á eftir sér.
Smellið hér til að sjá myndbandið á kvikmynd.is

Heimild: Reuters