Fotbolti.net
21.07.07 - 18:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Christian Vieri til Fiorentina (Staðfest)

Christian Vieri

Christian Vieri

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Fiorentina gekk í dag frá kaupunum á sóknarmanninum Christian Vieri og skrifaði þessi 34 ára fyrrum ítalski landsliðsmaður undir eins árs samning.
Vieri, sem er að fara í sitt þrettánda félag á sautján tímabilum, varð samningslaus hjá Atalanta í sumar þar sem hann skoraði tvö mörk í sjö leikjum en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða.

Vieri hefur skorað 134 mörk í Serie A og var markahæsi leikmaður Ítala á HM 1998 í Frakklandi með fimm mörk.

Þá var hann einnig markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar með 24 mörk í 24 leikjum þegar hann spilaði með Atletico Madrid árið 1997.

Vieri er ætlað að reyna fylla skarðið sem Luca Toni skildi eftir sig þegar hann fór til Bayern Munchen fyrr í sumar.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.