Fotbolti.net
21.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Lucio til Inter (Staðfest)

Lucio til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur gengið frá kaupunum á brasilíska varnarmanninum Lucio en hann kemur til félagsins frá FC Bayern.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur staðist læknisskoðun hjá Inter og gert samning við félagið sem gildir til ársins 2012.

Lucio hefur leikið með Bayern undanfarin þrjú ár en hann var áður á mála hjá Bayern Leverkusen.

Á ferli sínum hefur Lucio unnið þýska meistaratitilinn þrívegis og þá varð hann heimsmeistari með Brasilíu á sínum tíma.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.