21.07.09 - 11:16
Magnús Már Einarsson
Jónas Guðni Sævarsson til Halmstad (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Sænska félagið Halmstad hefur keypt Jónas Guðna Sævarsson fyrirliða KR en hann hefur gert þriggja ára samning við félagið.
Halmstad og KR hafa átt í viðræðum undanfarna daga og félögin hafa nú náð endum saman.
,,Þetta er búið að vera erfið fæðing og það er alltaf léttir þegar að svona hlutir klárast,\" sagði Jónas Guðni við Fótbolta.net í dag.
Jónas Guðni mun leika sinn síðasta leik með KR þegar að liðið mætir Larissa í Grikklandi á fimmtudag.
Hann mun í kjölfarið ganga í raðir Halmstad en liðið er í 10.sæti í sænsku Allsvenskunni.