Fotbolti.net
21.07.09 - 15:31
Magnús Már Einarsson

Ailton semur við félag í Kína (Staðfest)

Ailton semur við félag í Kína (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Ailton hefur samið við Chongquing Lifan í kínversku úrvalsdeildinni.
,,Ég hafði smá áhyggjur af líkamlegu atgervi hans en skoðanir sýndu að hann er mun betri en ég hélt,\" sagði Arie Haan þjálfari Chongquing Lifan en Ailton hefur oft þótt nokkrum kílóum of þungur.

Ailton, sem varð 36 ára í fyrradag, hefur verið hjá tíu félögum síðan að hann yfirgaf Werder Bremen fyrir fimm árum.

Hjá Werder Bremen átti hann góðu gengi að fagna en hann skoraði 28 mörk tímabilið 2003/2004 og var valinn leikmaður ársins í Þýskalandi.

Eftir tímann hjá Werder Bremen þá lék Ailton með Schalke, SV Hamburg og Duisburg í Þýskalandi en hann hefur einnig leikið í Tyrklandi, Austurríki, Úkraínu og Brasilíu.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.