21.07.09 - 15:04
Magnús Már Einarsson
James McCarthy til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wigan hefur keypt miðjumanninn James McCarthy frá Hamilton í Skotlandi fyrir 1,2 milljónir punda en verðið gæti hækkað upp í þrjár milljónir punda síðar meir.
McCarthy er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fimm ára samning hjá Wigan.
Wolves hafði einig verið á eftir þessum efnilega Íra en Wigan hafði betur í baráttunni um leikmanninn.
,,Það voru nokkur félög á eftir James og það er frábært að hann hafi valið Wigan,\" sagði Roberto Martinez stjóri Wigan.
,,Hann hefur hæfileika til að verða frábær leikmaður í framtíðinni og það er frábært að hafa fengið hann um borð.\"

Heimild: Sky