21.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Tiago til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalski miðjumaðurinn Tiago Mendes hefur skrifað undir tveggja ára samning við Atletico Madrid.
Tiago losnaði undan samningi hjá Juventus í gær og var ekki lengi að skrifa undir hjá Atletico.
Þessi þrítugi leikmaður þekkir til hjá Atletico því hann var í láni hjá félaginu á síðasta tímabili.

Tiago náði aldrei að festa sig í sessi hjá Juventus en hann lék einungis 42 leiki með liðinu á fjögurra ára ferli á Ítalíu.
Tiago lék með Lyon frá 2005-2007 en þar áður lék hann eitt tímabil með Chelsea.

Heimild: AFP