21.07.11 - 17:26
Hörður Snævar Jónsson
Pétur Ásbjörn í Hamar (Staðfest)

Mynd: Austurglugginn - Gunnar

Mynd: Austurglugginn - Gunnar
Hamar úr annarri deild hefur fengið varnarmanninn Pétur Ásbjörn Sæmundsson frá Haukum.
Pétur Ásbjörn hefur á ferli sínum leikið 29 leiki með Haukum í fyrstu deildinni og í Pepsi-deildinni.
Í fyrra skoraði hann eitt mark í átta leikjum í Pepsi-deildinni en í sumar hefur hann verið á láni hjá Markaregni í þriðju deildinni.
Pétur hefur núna gengið til liðs við Hamar og mun hjálpa liðinu í toppbaráttunni í annarri deildinni.
Pétur gæti leikið sinn fyrsta leik með Hamar strax í kvöld en þá mætir liðið botnliði Árborgar.