21.07.11 - 13:33
Magnús Már Einarsson
Ronald Koeman tekur við Feyenoord (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ronald Koeman hefur verið ráðinn þjálfari Feyenoord í Hollandi en hann tekur við af Mario Been sem hætti í síðustu viku.
Koeman, sem er 48 ára, gerði eins árs samning við Feyenoord en hann mun hefja störf á mánudag.
Jean Paul van Gastel og Giovanni van Bronckhorst verða aðstoðarmenn Koeman hjá Feyenoord.
Koeman skoraði á sínum tíma 14 mörk í 78 leikjum með hollenska landsliðinu en hann átti farsælan feril sem leikmaður.
Síðan þá hefur Koeman þjálfað Vitesse Arnhem, Ajax Amsterdam, Benfica, PSV Eindhoven, Valencia og síðast AZ Alkmaar en hann var rekinn þaðan í desember árið 2009 eftir einungis sex mánuði í starfi.

Heimild: Reuters