Fotbolti.net
21.07.11 - 19:42
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Alexis Sanchez til Barcelona (Staðfest)

Alexis Sanchez.

Alexis Sanchez.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona staðfesti í kvöld að félagið hafi gengið frá kaupum á Alexis Sanchez framherja Udinese og gert við hann fimm ára samning.
,,Udinese og FC Barcelona hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Alexis Sanchez,\" sögðu Spánar- og Evrópumeistararnir á vef sínum í kvöld.

Félagið mun greiða 26 milljnir evra fyrir þennan framherja sem er frá Chile.

Auk þess bætast við 11,5 milljónir punda þegar ákveðnum áföngum verður náð.

Sanchez mun gangast undir læknisskoðun á mánudaginn og skrifa svo undir samning við félagið.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.