21.08.06 - 09:45
Hafliði Breiðfjörð
Boulahrouz til Chelsea (Staðfest)

Khalid Boulahrouz í leik Hollands og Portúgals á HM í sumar.

Mynd: Getty Images

Chelsea hafa gengið frá kaupum á hollenska varnarmanninum Khalid Boulahrouz frá þýska félaginu Hamburg en kaupverð hefur ekki fengist uppgefið. Boulahrouz sem er 24 ára gamall komst í gegnum læknisskoðun og náði samkomulagi um kaup og kjör um helgina og var á leik Chelsea gegn Man City í gær sem áhorfandi.
Boulahrouz sem hefur gælunafnið Khalid the Cannibal eða Mannætan Khalid, hefur leikið 15 landsleiki fyrir Holland. Hann getur leikið allar stöðurnar í vörninni.
,,Í litlum hóp og í landi þar sem maður getur bara verið með 16 leikmenn í leik, er mikilvægt að hafa varamann í sem flestar stöður," sagði Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea.
,,Svo núna er ég með Boulahrouz, Ricardo Carvalho og John Terry, þrjá möguleika í miðja vörnina. Ég get haft Paula Ferreira og Boulahrouz sem tvo möguleika hægra megin, ég get haft Boulahrouz og Wayne Bridge sem tvo möguleika vinstra megin."
Boulahrouz var í byrjunarliði Hollands í síðustu tveimur leikjum liðsins á Heimsmeistaramótinu í sumar en fékk að líta rauða spjaldið í tapleiknum gegn Portúgal í 16 liða úrslitum. Þar var hann ásakaður um að reyna að slasa Cristiano Ronaldo af ásetningi með hárri tæklingu.