21.08.07 - 12:25
Hafliði Breiðfjörð
Atli Sigurðsson frá Val til Heerenveen (Staðfest)

Atli Sigurðsson hjá Heerenveen.

Mynd: Úr einkasafni

Atli Sigurðsson hjá Heerenveen.

Mynd: Úr einkasafni
Atli Sigurðsson, 17 ára gamall leikmaður 2. flokks Vals, hefur gengið í raðir hollenska félagsins Heerenveen og verður fjórði Íslendingurinn sem er á mála hjá féllaginu. Atli skrifaði undir eins árs samning við félagið í síðustu viku.
Áður hafði Atli verið á reynsluæfingum hjá Heerenveen í tvær vikur þar sem honum gekk mjög vel. Eftir þann tíma fundaði hann með forráðamönnum félagsins sem buðu honum samning. Eftir það spilaði hann svo fyrsta leik sinn fyrir félagið sem var æfingaleikur og hann skoraði í 4-2 sigri.
Hann átti svo að spila fyrsta deildarleikinn á laugardag en það gekk ekki eftir þar sem hann hafði ekki fengið leikheimild með sínu nýja félagi. Í samtali við Fótbolta.net í dag sagði Atli að hann ætti von á að leikheimildin gengi í gegn í dag eða á morgun.
,,Ég kem til með að æfa með U-19 ára liðinu sem eru strákar fæddir 89 og 90," sagði Atli í samtali við Fótbolta.net í dag.
Fyrir hjá félaginu eru þrír Íslendingar. Tveir þeirra eru Skagamennirnir Arnór Smárason og Björn Jónsson sem hafa staðið sig vel og eru reglulega í fréttum hér á Fótbolta.net fyrir frammistöðu sína hjá félaginu.
,,Ég er búinn að vera hérna í nokkrar vikur og farinn að kynnast þeim ágætlega," sagði Atli en þriðji Íslendingurinn hjá félaginu er 14 ára gamall bróðir Atla, Ingólfur Sigurðsson, sem gekk til liðs við félagið í sumar.
Atli mun spila með Birni Jónssyni í U19 ára liðinu en Arnór og Ingólfur eru í öðrum liðum hjá félaginu. Hann telur það hjálpa að fara til félags sem fyrir er með aðra Íslendinga. ,,Já ég held að það, hjálpar mikið að hafa Íslendinga sérstaklega þegar maður kann ekki málið," sagði hann að lokum við Fótbolta.net.