Fotbolti.net
21.08.07 - 22:01
Sindri Þór Þorgeirsson
Ítalska deildin

Emerson til Milan (Staðfest)

Emerson til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Emerson er kominn aftur til Ítalíu og er genginn til liðs við Evrópumeistarana í AC Milan en þetta tilkynnti félagið nú í kvöld. Kaupverðið er talið vera um fimm milljónir evra.
Emerson sem er 31 árs miðjumaður hefur verið hjá Spánarmeisturum Real Madrid síðan síðasta sumar og hann vann titilinn með liðinu á síðasta tímabili.

Hann byrjaði ferilinn hjá Gremio í heimalandinu og fór þaðan til þýska liðsins Leverkusen árið 1997. Hann fór síðan til Ítalíu og vann Serie A með Roma árið 2001.

Þaðan fór hann með Fabio Capello til Juventus og fylgdi honum síðan einnig til Real Madrid. AC Milan verður því fyrsta ítalska liðið sem Emerson gengur til liðs við, sem er ekki þjálfað af Fabio Capello.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.