Fotbolti.net
21.08.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Harry Kewell er kominn til Melbourne Victory (Staðfest)

Harry Kewell er kominn til Melbourne Victory (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Harry Kewell, fyrrverandi kantmaður Leeds United og Liverpool, er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Melbourne Victory sem er lið í áströlsku úrvalsdeildinni.

Kewell, sem er 32. ára, hefur aldrei leikið í áströlsku úrvalsdeildinni en hann fór sem unglingur til Englands til að spila með Leeds, en hann hefur þó leikið 54 landsleiki og skorað 16 mörk í þeim.
,,Ég er stoltur af því að vera Ástrali og vil bæta deildina hér heima. Mig hefur lengi langað að spila í áströlsku úrvalsdeildinni og nú hefur Melbourne Victory látið það rætast,\" sagði Kewell á fréttamannafundi.

,,Harry er íþróttatákn hér í Ástralíu og hann mun færa liðið á algjörlega nýtt plan,\" sagði Anthony Di Pietros, formaður félagsins.

,,Hann mun laða aðdáendur að sér og hann mun láta fleira fólk hafa áhuga á knattspyrnu í Ástralíu.

,,Við höfum rætt við Harry í langan tíma og við erum hæstánægðir með að hafa lokið við mikilvægustu kaup í sögu úrvalsdeildarinnar hér í Ástralíu.\"

Heimild: Sports Illustrated

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.