Fotbolti.net
21.08.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Nabil El Zhar gengur í raðir Levante (Staðfest)

Nabil El Zhar gengur í raðir Levante (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nabil El Zhar er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við spænska félagið Levante. El Zhar er 25 ára gamall og kom til Liverpool fyrir fimm árum frá Saint-Etienne í Frakklandi en tókst aldrei að komast í byrjunarlið þeirra rauðklæddu.

El Zhar er sóknarmaður og hefur leikið átta landsleiki fyrir Morokkó. Hann var lánaður til PAOK Salonique í Grikklandi síðasta tímabil þar sem hann skoraði þrjú mörk í tólf leikjum en núna hefur hann ákveðið að það er tímabært að skipta um lið.
,,Ég lærði mikið hjá Liverpool en ég fékk aldrei tækifæri til að sýna hvað í mér býr,\" sagði El Zhar við Sky Sports.

,,Ef ég hefði fengið tækifæri þá hefði ég sýnt hvers ég er megnugur en svona er að vera knattspyrnumaður.

,,Ég er ánægður vegna þess að Liverpool er frábært félag, ég ber mikla virðingu gagnvart félaginu og ég var ánægður að vera partur af því.

,,En núna er ég leikmaður Levante og er orðinn 25 ára gamall, það er kominn tími á að ég láti ljós mitt skína. Ég er ánægður með að vera kominn til Spánar vegna þess að ég held að leikstíllinn hérna henti mér betur en á Englandi.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.