Fotbolti.net
21.08.11 - 17:33
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Pablo Daniel Osvaldo til Roma (Staðfest)

Osvaldo að fá gula spjaldið.

Osvaldo að fá gula spjaldið.

Canon

Mynd: Getty Images

Pablo Daniel Osvaldo er á leið aftur í ítalska boltann samkvæmt spænskum fjölmiðlum.

Greint er frá því að Roma hafi náð samkomulagi við Espanyol um kaupverðið á þessum 25 ára sóknarmanni.
Osvaldo lék með Bologna fyrir tveimur árum, hann fæddist í Argentínu en er með ítalskan ríkisborgararétt og á leiki að baki með U21 landsliði Ítalíu.

Hann getur leikið einn í fremstu víglínu og einnig á vængnum í þriggja manna sóknarlínu.

Koma hans til Roma er talin gefa til kynna að Marco Borriello sé á leið frá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.