21.09.10 - 13:39
Magnús Már Einarsson
Paulo Bento tekur við Portúgal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Paulo Bento, fyrrum þjálfari Sporting Lisabon, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Portúgal en hann tekur við liðinu af Carlos Queiroz.
Queiroz var rekinn á dögunum og í kjölfarið var talað um að Jose Mourinho myndi taka tímabundið við. Nú er hins vegar ljóst að Bento mun taka við Portúgölum.
Bento, sem lék á sínum 35 leiki með portúgalska landsliðinu, skrifaði undir samning sem gildir þar til eftir EM 2012.
Fyrsti leikur Bento verður gegn Danmörku 8.október og fjórum dögum síðar kemur hann með liðinu á Laugardalsvöll.
Portúgal þarf nauðsynlega sigur í þessum tveimur leikjum en liðið er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.

Heimild: Sky