21.09.10 - 15:52
Magnús Már Einarsson
Matthaus tekur við Búlgaríu (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Lothar Matthaus hefur samþykkt að taka við landsliði Búlgaríu en hann tekur við liðinu af Stanimir Stoilov sem hæti á dögunum.
Matthaus, sem er 49 ára, hefur samþykkt eins árs samning með möguleika á tveimur í viðbót.
Matthaus, sem er 49 ára, hefur samþykkt eins árs samning með möguleika á tveimur í viðbót.
Matthaus varð á sínum tíma heimsmeistari með Þjóðverjum en hann hefur síðan þá meðal annars þjálfað ungverska landsliðið sem og Rapid Vín í Austurríki.
Búlgaría tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM fyrr í mánuðinum en liðið mætir Wales næst þann 8.október næstkomandi.
Búlgaría tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM fyrr í mánuðinum en liðið mætir Wales næst þann 8.október næstkomandi.
Heimild: BBC
