Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. október 2021 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Það sem er stórkostlegt við kvennaknattspyrnuna núna"
Icelandair
Sif Atladóttir
Sif Atladóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Árnadóttir
Guðný Árnadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonurnar og FH-ingarnir Guðný Árnadóttir og Sif Atladóttir sátu í gær fyrir svörum í Teams-viðtali. Framundan er leikur gegn Tékklandi á morgun og hefst hann klukkan 18:45.

Þær Guðný og Sif voru spurðar út í verkefni morgundagsins.

„Tékkarnir líta vel út, vel spilandi lið sem vill halda í boltann og er með sterka leikmenn í sínu liði. Við þurfum að mæta klárar í þann leik, spila okkar besta leik til að ná í úrslit. Staðan í riðlinum er allt í lagi, við þurfum að fara inn í þennan leik til að ná í þrjú stig og þá erum við í góðri stöðu," sagði Guðný.

Bætt sig gríðarlega frá síðasta leik
„Verkefnið leggst vel í mig. Við höfum mætt Tékkunum í gegnum árin en það sem er stórkostlegt við kvennaknattspyrnuna núna er að það eru einhvern veginn öll lönd og allar þjóðir að bæta sig alveg einstaklega hratt og Tékkarnir eru þar á meðal. Það sást í leiknum gegn Hollandi [1-1 jafntefli] að þær hafa bætt sinn leik alveg gríðarlega síðan við spiluðum við þær 2017/2018," sagði Sif.

„Ég held þetta verði hörkuleikur sem við erum að fara í á föstudaginn og þurfum að vera búnar að fínpússa þá hluti sem við þurfum að gera til þess að loka og sækja hratt á þær."

Hver leikur er hálfgerður bikarúrslitaleikur
Er hægt að setja þennan leik upp sem hálfgerðan úrslitaleik fyrst þú talar um að Tékkarnir séu svona sterkir?

„Hver leikur er hálfgerður bikarúrslitaleikur og við verðum að horfa á það þannig. Við vitum að liðin eru orðin það sterk að hver leikur er mjög mikilvægur. Við þurfum að vinna næsta leik til að byrja stigasöfnun. Við spilum þennan leik og tökum svo stöðuna. Við stefnum á sigur, það er ekkert annað í boði," sagði Sif.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner