Fotbolti.net
21.11.06 - 08:39
Magnús Már Einarsson

Eggert kaupir West Ham á 85 milljónir punda (Staðfest)

Eggert Magnússon.

Eggert Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

West Ham hefur greint frá því að félagið hafi samþykkt 85 milljóna yfirtökutilboð Eggerts Magnússonar í félagið. Fjárfestingahópur Eggerts hefur tryggt sér 83% hluta í West Ham og hefur stjórn félagsins mælt með hópnum til þeirra sem eiga hlut í félaginu.
Eggert mun taka við stjórnarformennsku af Terry Brown en sá síðarnefndi mun halda áfram í starfi hjá West Ham, sem ráðgjafi.

,,Tilboðið gefur sanngjarnt verð miðað við sögu okkar, nýlega frammistöðu og væntingar. Eggert Magnússon er skuldbundinn til að tryggja að félagið getið geti haldað áfram frábærri hefð í velgengni innan og utan vallar í þágu stuðningsmannanana og samfélagsins," sagði Terry Brown.

,,Ég er bæði ánægður og það er mér heiður að Terry Brown og félagar hans kjósi að styðja tilboð okkar í West Ham. Við getum núna endað óvissu síðustu vikna og haldið áfram á næsta stig þróunar frábærs félags, með Alan Pardew sem mun leiða okkur á vellinum," sagði Eggert Magnússon.

,,Ég virði persónulegu ábyrgðina sem fylgir því að verða formaður West Ham og segi starfsfólki, leikmönnum og stuðningsmönnum að ég er hér til að gera allt til að ná árangri innan og utan vallar," bætti Eggert við.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.