21.12.06 - 05:30
Magnús Már Einarsson
Elinbergur í Leikni (Staðfest)

Elinbergur ásamt Arnar Einarssyni formanns Leiknis og Róberti Arnarsyni formanns meistaraflokksráðs.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Leiknismenn í fyrstu deild hafa fengið liðsstyrk en varnarmaðurinn Elinbergur Sveinsson hefur gengið til liðs við félagið frá Víkingi Ólafsvík og gert tveggja ára samning.
Elinbergur hefur verið fyrirliði Víkinga undanfarin ár en þessi 24 ára gamli leikmaður var í liðinu þegar að Ólafsvíkingarnir unnu þriðju deildina og einnig þegar þeir komust upp í fyrstu deild.
Hann hefur leikið 29 leiki með Víkingi í fyrstu deild undanfarin tvö ár og verið fastamaður þar en fleiri lið sýndu honum áhuga í haust. ,,Það voru nokkur lið sem höfðu samband við mig. Það voru tvö lið úr úrvalsdeildinni og þrjú úr þeirri fyrstu sem sýndu mér áhuga," sagði Elinbergur eftir að hafa skrifað undir samning við Leikni.
,,Ég kem úr sveit og alla tíð hefur Víkingur Ólafsvík verið mitt lið. Ég fékk að æfa hérna hjá Leikni og þá fannst mér eins og væri kominn heim. Andrúmsloftið var allt mjög afslappað og frábærir félagar í þessu liði sem ég hef kynnst vel. Þjálfarinn er frábær og fín stjórn þannig að mér leið vel þegar ég kom hingað. Það var það sem skipti öllu máli þegar upp var staðið," sagði Elinbergur en hann segir það eiga eftir að verða skrýtið að leika gegn Víkingi í fyrstu deildinni næsta sumar.
,,Jú alveg hiklaust. Það var mjög erfið ákvörðun sem ég þurfti að taka að yfirgefa Víking Ólafsvík vegna þess að ég var að koma til Reykjavíkur. Á nokkrum mánuðum breyttust aðstæður hjá mér og ég þurfti að taka þessa ákvörðun. Ég byrjaði í sambúð og við ákváðum að fara í kennaraháskólanám og því var ekkert annað í stöðunni en að koma til Reykjavíkur."

Heimild: Leiknir.com