21.12.07 - 16:03
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Borgþórsson í Selfoss (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Selfoss

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Selfoss
Selfyssingar gengu í dag frá samning við fyrrum fyrriliða Aftureldingar, Gunnar Borgþórsson og að sama tilefni var gengið frá samning við tvo efnilega stráka, sem spiluðu megnið af leikjum Selfoss í fyrra, þá Sigurð Eyberg Guðlaugsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Það er mikill fengur fyrir Selfyssinga að fá Gunnar í liðið, en hann hefur verið fyrriliði Aftureldingar síðustu tvö ár.
,,Ég á eftir að sakna félagana í Aftureldingu, búinn að eiga mjög góð ár hjá frábæru félagi, en eftir að ég flutti á Selfoss lá ekkert annað fyrir en að spila með þeim," sagði Gunnar Borgþórsson við Fótbolta.net
,,Mikil uppbygging hefur verið á Selfossi og nokkrir góðir strákar að koma upp, einnig er gaman að fara spila með reynsluboltunum Sævari og Henning,” bætti hann við.