Fotbolti.net
21.12.11 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Eggert Gunnþór til Wolves (Staðfest)

Eggert með treyju Wolves.

Eggert með treyju Wolves.

Canon

Mynd: Heimasíða Wolves

Eggert Gunnþór Jónsson hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Wolves í ensku úrvalsdeildinni en hann kemur til félagsins frá Hearts í Skotlandi.
Félögin hafa náð samkomulagi um kaupverð og Eggert mun ganga formlega í raðir Wolves þegar félagaskiptaglugginn opnar þann 1. janúar. Samningur Eggerts við Hearts átti að renna út næsta sumar en talið er að Wolves muni borga 250 þúsund pund fyrir leikmanninn.

Eggert stóðst sjálfur læknisskoðun hjá Wolves fyrir leik liðsins gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi en hann var síðan á meðal áhorfenda á leiknum.

,,Þetta er tækifæri til að taka stórt skref upp á við á ferlinum og við óskum honum alls hins besta í framtíðinni,\" sagði talsmaður Hearts á heimasíðu félagsins í dag.

Eggert, sem er 23 ára gamall, ólst upp hjá Fjarðabyggð áður en hann gekk til liðs við Hearts árið 2005. Síðan þá hefur Eggert skorað níu mörk í 153 deildarleikjum með Hearts en hann hefur leikið allar stöður í vörninni hjá liðinu sem og á miðjunni.

Eggert gæti spilað sinn fyrsta leik með Wolves þegar liðið mætir Chelsea mánudaginn 2. janúar en hann mun hefja æfingar með Úlfunum í næstu viku.

Heimild: Heimasíða Wolves

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.