Fotbolti.net
21.12.11 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Gilles Mbang Ondo til Sandnes Ulf (Staðfest)

Gilles Mbang Ondo til Sandnes Ulf (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gilles Mbang Ondo hefur gert tveggja ára samning við nýliða Sandnes Ulf í norsku úrvalsdeildinni.
Ondo lék með Grindavík frá 2008 til 2010 en hann varð markakóngur Pepsi-deildarinnar í fyrra.

Í kjölfarið samdi Ondo við Stabæk þar sem hann skoraði fjögur mörk í 25 leikjum á nýliðnu tímabili.

Vegna fjárhagsörðuleika Stabæk hefur Ondo núna fengið að yfirgefa félagið og hann ákvað að semja við Steinþór Frey Þorsteinsson og félaga í Sandnes Ulf.

,,Við höfum fylgst lengi með honum eða alveg síðan hann spilaði á Íslandi. Eftir eitt tímabil í úrvalsdeildinni teljum við að hann geti náð ennþá lengra,\" sagði Tom Rune Espedal yfirmaður knattspyrnumála.

Heimild: Dagbladet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.