22.01.07 - 06:00
Petra Lind Sigurðardóttir til Breiðabliks (Staðfest)

Blikastúlkur fagna marki

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Blikastúlkur fagna marki

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Petra Lind Sigurðardóttir er gengin til liðs við Breiðablik í Landsbankadeild kvenna. Petra er markmaður en hún var aðalmarkmaður Þórs/Ka í Landsbankadeild kvenna síðasta sumar þar sem hún lék alla leiki liðsins auk þess að bera fyrirliðaband Akureyrarstúlkna.
Petra hefur átt fast sæti í U19 ára landsliði Íslands og kemur til með að styrkja lið Blikastúlkna svo um munar en henni er væntanlega ætlað að fylla það skarð sem landsliðsmarkmaðurinn Þóra B. Helgadóttir skilur eftir sig en Þóra er nú farin til Belgíu.
Heimild: Heimasíða Þórs
