Fotbolti.net
22.01.07 - 11:34
Magnús Már Einarsson

Jóhannes Karl Guðjónsson til Burnley (Staðfest)

Jóhannes Karl Guðjónsson til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson hefur staðist læknisskoðun hjá Burnley og er hann búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Jóhannes Karl kemur til enska fyrstudeildarliðsins frá AZ Alkmaar á 150 þúsund pund og fer hann beint inn í leikmannahóp Burnley fyrir leik liðsins gegn Stoke á morgun.
Jóhannes Karl fékk lítið að spila hjá AZ en hann fór til hollenska liðsins síðastliðið sumar eftir að hafa leikið með Leicester í tvö tímabil.

Þessi 26 ára gamli baráttujaxl þekkir vel til enska boltans en auk þess að leika tímabil með Leicester þá hefur hann einnig leikið með Wolves og Aston Villa á Englandi.

Burnley er sem stendur í þrettánda sæti ensku fyrstu deildarinnar með 38 stig eftir 27 leiki en eins og fyrr segir mætir liðið Stoke á morgun.

Heimild: Heimasíða Burnley

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.