22.01.07 - 15:23
Magnús Már Einarsson
Marco Di Vaio til Genoa (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ítalska liðið Genoa sem leikur í Serie B hefur keypt framherjann Marco Di Vaio frá Valencia og hefur leikmaðurinn gert tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Di Vaio sem er þrítugur hefur verið í láni hjá Monaco í Frakklandi undanfarin ár en þessi fyrrum leikmaður Parma og Juventus mun nú reyna hjálpa Genoa að komast upp um deild.
Sem stendur er Genoa í þriðja sæti Serie B, stigi á eftir Napoli og þremur stigum á eftir toppliði Juventus.
Sem stendur er Genoa í þriðja sæti Serie B, stigi á eftir Napoli og þremur stigum á eftir toppliði Juventus.
Heimild: Channel 4
