Fotbolti.net
22.01.08 - 19:09
Hafliði Breiðfjörð

Sunderland kaupir Bardsley frá Man Utd (Staðfest)

Phil Bardsley.

Phil Bardsley.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hafa keypt Phil Bardsley frá Manchester United en samningurinn er 2 milljón punda virði. Bardsley sem er 22 ára gamall hægri bakvörður skrifaði svo undir þriggja og hálfs árs samning við Sunderland og verður þriðju kaup félagsins í janúar.
,,Við þurftum að styrkja vörnin og Phil er góð viðbót við hópinn," sagði Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland í dag.

Bardsley á að baki átta leiki með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Hann bætti við. ,,Sunderland eru með frábæran stjóra sem hefur gefið mér tækifæri til að koma hingað og spila."

,,Ég er hæstánægður, þetta er stórt félag og gott tækifæri."


Bardsley hafði áður verið á láni hjá Sheffield United, Royal Andwerp, Burnley og Rangers.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.