Fotbolti.net
22.01.09 - 16:02
Hafliði Breiðfjörð

Marlon King lánaður til Middlesbrough (Staðfest)

Mido lánaður til Wigan í staðinn

King í leik með Hull í vetur.

King í leik með Hull í vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur gert hálfs árs lánssamning við Wigan Athletic um framherjann Marlon King. King sem er 28 ára gamall var á æfingasvæði Middlesbrough í dag þar sem gengið var frá félagaskiptunum.
Framherjinn hafði verið á láni hjá Hull City en sneri til baka og er nú farinn til Middlesbrough. Hann lék 22 leiki með Hull á tímabilinu og skoraði í þeim fimm mörk síðan hann kom í ágúst.

Þá er egypski framherjinn Mido í viðræðum við Steve Bruce stjóra Wigan um að vera lánaður í hina áttina, frá Middlesbrough til Wigan.

King sem er landsliðsmaður Kamaíka hóf feril sinn hjá Barnet árið 1998 en fór þaðan til Gillingham í júní árið 2000. Þar skoraði hann 40 mörk í 101 leik.

Hann fór svo til Nottingham Forest á 950 þúsund pund í nóvember árið 2003 en gekk ekki vel þar og var lánaður til Leeds og Watford áður en hann endaði hjá þeim fyrir hálfa milljón punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.