Fotbolti.net
22.01.09 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Aron Bjarki Jósepsson í KR (Staðfest)

Aron Bjarki (til vinstri) fagnar marki.

Aron Bjarki (til vinstri) fagnar marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrannar Björn Steingrímsson

Aron Bjarki Jósepsson, 19 ára varnarmaður úr Völsungi hefur gengið í raðir KR.
Aron Bjarki æfði með KR í desember og lék einnig æfingaleiki með liðinu. Hann þótti standa sig vel og nú hefur hann skipt yfir í KR.

Síðastliðið sumar lék Aron alla 22 leiki Völsungs í annarri deildinni og skoraði tvö mörk. Hann var einnig fyrirliði liðsins fyrri hluta sumars.

Árið 2006 steig Aron sín fyrstu skref með meistaraflokki þegar hann lék fimm leiki með Völsungi og árið 2007 lék hann síðan sextán leiki í annarri deildinni.

Aron hefur fengið leikheimild með KR og getur því leikið með liðinu gegn Leikni í Reykjavíkurmótinu annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.