22.01.09 - 19:13
Magnús Már Einarsson
Nigel Quashie til Wolves á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wolves hefur fengið miðjumanninn Nigel Quashie á láni frá West Ham en samningurinn gildir út leiktíðina.
Quashie er nýbúinn að ljúka tveggja mánaða lánssamningi hjá Birmingham City sem er nágrannalið Wolves.
Wolves er í toppsætinu í ensku Championship deildinni með 59 stig, fimm stigum á undan Reading og liðið vinnur nú að því að styrkja leikmannahópinn fyrir lokabaráttuna í deildinni.
Auk þess að fá Quashie þá fékk Wolves kantmanninn Kyel Reid á láni í vikunni en hann kemur einnig frá West Ham.

Heimild: BBC