Fotbolti.net
22.01.09 - 20:08
Magnús Már Einarsson

Peter Gravesen til Blokhus (Staðfest)

Peter Gravesen til Blokhus (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Danski miðjumaðurinn Peter Gravesen hefur samið við Blokhus í heimalandi sínu eftir að hafa leikið með Fylki undanfarin þrjú ár.
Gravesen hefur undanfarna mánuði æft með sínu fyrrum félagi Vejle og nú hefur hann samið við Blokhus sem er í toppbaráttunni í þriðju efstu deild í Danmörku.

Samningur Gravesen við Blakhus gildir í hálft ár eða út tímabilið í Danmörku.

Mads Beierholm sem lék með Fylki sumarið 2007 hefur einnig fært sig um set í Danmörku en hann hefur samið við Odder sem leikur í þriðju deildinni eða fjórðu efstu deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.