Fotbolti.net
22.01.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Manchester City lánar Jo til Galatasaray (Staðfest)

Manchester City lánar Jo til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur lánað brasilíska landsliðsframherjann Jo til tyrkneska félagsins Galatasaray út tímabilið.
Manchester City hafði keypt leikmanninn frá CSKA Moskvu á 10 milljónir punda árið 2008 en hann hefur aðeins skorað eitt mark í deildinni fyrir félagið.

Hann var svo lánaður til Everton á síðari hluta síðustu leiktíðar.

Hann hafði svo verið lánaður til Everton alla þessa leiktíð en félagið setti hann í bann í síðasta mánuði þar sem hann fór án leyfis til Brasilíu er hann var meiddur.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.