Fotbolti.net
22.01.10 - 08:01
Magnús Már Einarsson

Matthew Kilgallon til Sunderland (Staðfest)

Matthew Kilgallon til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt varnarmanninn Matthew Kilgallon frá Sheffield United.
Kauvperðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það hljóði upp á tvær milljónir punda.

Kilgallon, sem er 26 ára, skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Sunderland.

Þessi fyrrum leikmaður Leeds var einnig á óskalista Burnley en Sunderland hafði betur.

Kilgallon má ekki leika með Sunderland gegn Portsmouth í enska bikarnum um helgina þar sem að hann er búinn að leika með Sheffield United í keppninni.

Því er líklegt að hann leiki sinn fyrsta leik með Sunderland þegar að liðið mætir Everton á miðvikudag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.