Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   mið 22. janúar 2020 22:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fletcher: Eitrað andrúmsloft á Old Trafford
Darren Fletcher, fyrrum miðjumaður Manchester United, var á vaktinni hjá BBC Radio 5 Live í kvöld og tjáði sig um leik United og Burnley.

Burnley sigraði leikinn 0-2 og hafði Fletcher þetta að segja skömmu fyrir leikslok:

„Tómur völlur, ekki fallegir söngvar og eitrað andrúmsloft hér á Old Trafford í kv0ld. Við sáum smá af þessu gegn Norwich en í kvöld er i fyrsta sinn sem loftið er í alvöru eitrað," sagði Fletcher.

„Stuðningsmenn United hafa verið frábærir á leiktíðinni og þetta unga lið þarf á stuðningi þeirra að halda. Leikmennirnir þurfa hjálp," sagði Fletcher að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner