Fotbolti.net
22.02.07 - 13:01
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Grygera fer til Juventus í sumar (Staðfest)

Grygera fer til Juventus í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Zdenek Grygera, varnarmaður Ajax í Amsterdam, hefur skrifað undir fimm ára samning við Juventus sem tekur gildi þann 1. júlí næstkomandi.
Grygera verður einmitt samningslaus á síðasta degi júnímánaðar og hefur hann ákveðið að fara til Juve þrátt fyrir að þeir séu ekki enn komnir í Serie A.

Grygera, sem er 26 ára gamall, hefur skorað eitt mark í 44 landsleikjum fyrir Tékkland. Hann spilaði hjá FC Zlin, Petra Drnovice og Sparta Prag áður en hann fór til Ajax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.