Fotbolti.net
22.02.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jón Haukur í Njarðvík (Staðfest)

Jón Haukur í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkurfréttir - Þorgils Jónsson

Njarðvíkingar hafa fengið varnarmanninn Jón Hauk Haraldsson frá Sindra og hefur hann fengið leikheimild með félaginu.
Jón Haukur, sem er 21 árs, hefur verið fastamaður í liði Sindra undanfarin ár. Hann var reyndar á samning hjá Víkingi R. frá 2005 og þar til um áramótin en hann var alltaf í láni hjá Sindra.

Í sumar skoraði Jón Haukur þrjú mörk í þrettán leikjum í annarri deildinni með Sindra en í fyrra gerði hann tvö mörk í fimmtán leikjum.
Hann getur spilað sinn fyrsta mótsleik með Njarðvík á sunnudag en þá mætir liðið HK í Lengjubikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.