22.02.08 - 13:54
Magnús Már Einarsson
Jóhann Ólafur og Hjalti Jóhannesson í Selfoss (Staðfest)

Selfyssingar fagna eftir að hafa komist upp úr 2.deild síðastliðið haust.

Mynd: Stefán Pálmason

Selfoss sem leikur í 1.deild hefur fengið markvörðinn Jóhann Ólaf Sigurðsson á láni frá Fylki og þá hefur Hjalti Jóhannesson komið til liðsins frá KFS.
Jóhann Ólafur lék á sínum yngri árum með Selfyssingum og lék tvo leiki með liðinu í 2.deildinni árið 2003.
Hann fór síðan í Fylki þar sem hann hefur fengið fá tækifæri en sumarið 2005 lék hann þrjá leiki með liðinu í Landsbankadeildinni. Síðar það sumar fór hann til Gróttu á láni og lék sjö leiki í þriðju deildinni.
Hjalti, sem verður 34 ára árinu, hefur leikið með KFS undanfarin fjögur ár en síðastliðið sumar kom hann við sögu í fimm leikjum í þriðju deildinni.
Áður var hann fastamaður í liði ÍBV og varð meðal annars Íslands og bikarmeistari með liðinu á sínum tíma en hann á 110 leiki að baki í efstu deild.
Bæði Hjalti og Jóhann Ólafur hafa fengið leikheimild með Selfyssingum og geta því leikið með liðinu gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum í kvöld.