22.02.09 - 10:20
Magnús Már Einarsson
Jóhann Ólafur í Selfoss (Staðfest)

Ómar Valdimarsson og Jóhann Ólafur við undirritun samningsins.

Mynd: Selfoss

Jóhann Ólafur Sigurðsson gekk í gærkvöldi í raðir Selfyssinga frá Fylki. Jóhann Ólafur spilaði með Selfoss upp alla yngri flokkana, en fór í Fylki árið 2004 og hefur spilað nokkra leiki með þeim í efstu deild.
Jóhann Ólafur spilaði tvo leiki fyrir Selfoss þegar hann var 17 ára áður en hann fór til Fylkis.
Í fyrra var hann lánaður hluta af keppnistímabilinu til Selfyssinga og spilaði með þeim 12 leiki í fyrstu deildinni.
Jóhann Ólafur var norðurlandameistari með u-17 ára landsliði íslands skipað leikmönnum fæddir 1986 og var hann meðal annars valinn markmaður mótsins og besti leikmaður úrslitaleiksins . Eins hefur hann verið í landsliðshóp hjá u-19 og u-21 árs landsliðum Íslands.