Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Yfirgefur Dalvik og flytur suður (Staðfest)
Mynd: Dalvík/Reynir
Spánverjinn Alejandro Zambrano yfirgefur Dalvík/Reyni til að flytja suður á höfuðborgarsvæðið.

Zambrano er varnarmaður sem hefur verið ráðinn í spennandi þjálfarastarf í Reykjavík og hættir því hjá Dalvík.

Auk þess að vera mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Dalvíkinga þjálfaði Zambrano yngri flokka Dalvíkur.

„Við þökkum Ale kærlega fyrir hans mikilvægu störf í þágu félagsins undanfarin ár og óskum honum og hans litlu fjölskyldu velfarnaðar á nýjum stað," segir í tilkynningu frá Dalvík/Reyni.


Athugasemdir
banner
banner