22.03.06 - 13:25
Magnús Már Einarsson
Gísli Freyr í Fjarðabyggð (Staðfest)


Mynd: hk.is


Mynd: hk.is
HK hefur lánað Gísla Frey Ólafsson til Fjarðabyggðar í annarri deild en hann mun vera til skoðunar hjá liðinu í deildabikarnum og verði báðir aðilar sáttur verður hann á láni hjá Austanliðinu út þetta sumar að sögn Elvars Jónssonar aðstoðarþjálfara Fjarðabyggðar.
Gísli sem getur leikið bæði á sókninni og á miðjunni er annar leikmaðurinn sem HK lánar Austur en á dögunum var Jóhann Ingi Jóhannsson einnig lánaður til Fjarðabyggðar.
Gísli kom inn í meistaraflokk HK sumarið 2000 og var hann það ár valinn knattspyrnumaður ársins hjá félaginu en alls hefur hann skorað tíu mörk í 36 leikjum fyrir liðið.
Gísli kom inn í meistaraflokk HK sumarið 2000 og var hann það ár valinn knattspyrnumaður ársins hjá félaginu en alls hefur hann skorað tíu mörk í 36 leikjum fyrir liðið.
Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar
