Fotbolti.net
22.03.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Sölvi Davíðsson í Gróttu (Staðfest)

Spilar tvo leiki til að byrja með

Sölvi Davíðsson í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Framherjinn og kantmaðurinn Sölvi Davíðsson sem hætti hjá KR síðastliðið haust mun á næstunni fá félagaskipti í þriðjudeildarlið Gróttu af Seltjarnarnesi.
Hann mun spila tvo leiki með liðinu áður en hann tekur ákvörðun um það hvort hann leiki með liðinu í sumar.

,,Ég var eiginlega búinn að taka ákvörðun um að taka alveg pásu frá boltanum í sumar en svo talaði Ási Haralds (þjálfari Gróttu) við mig og bauð mér að kíkja á æfingu og spila þessa tvo leiki og ég ákvað að taka því. Síðan met ég framhaldið í kjölfarið," sagði Sölvi við Fótbolti.net í gærkvöldi.

Sölvi sem er 22 ára er uppalinn hjá KR en hann lék fimm leiki í Landsbankadeildinni með liðinu síðastliðið sumar og þrjá leiki í VISA-bikarnum. Hann ákvað síðastliðið haust að yfirgefa KR eftir að samningur hans við félagið rann út.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.