Fotbolti.net
22.03.07 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Rannver í Fjölni (Staðfest)

Rannver í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Fjölnir úr fyrstu deild hefur fengið sóknarmanninn Rannver Sigurjónsson frá Víkingi Reykjavík en við greindum frá því á dögunum að hann væri á förum frá síðarnefnda liðinu eftir að samningur hans rann út um áramótin.
Rannver sem er 22 ára spilaði einn leik í Landsbankadeildinni og einn leik í Visa-bikarnum síðastliðið sumar en hann kom til Víkings frá Breiðablik árið 2005.

Hann hefur þegar fengið leikheimild með Fjölnismönnum og getur hann því leikið með þeim gegn sínum gömlu félögum í Breiðablik í Lengjubikarnum á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.