22.03.07 - 13:44
Magnús Már Einarsson
Sigurður Víðisson lánaður til Víkings í Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík úr fyrstu deild karla hefur fengið miðjumanninn Sigurð Víðisson að láni frá HK úr Landsbankadeildinni.
Sigurður sem verður tvítugur í ár var fyrirliði í öðrum flokki HK á síðustu leiktíð en hann hefur átt við meiðsli að stríða í vetur.
Hann var nokkrum sinnum í leikmannahópnum hjá meistaraflokki HK í fyrstu deildinni síðastliðið sumar en hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2008.
Víkingur fékk í gær annan leikmann á tvítugsaldri úr Kópavogi en liðið fékk þá Hjörvar Hermannsson á láni frá Breiðablik.

Heimild: Heimasíða HK