Fotbolti.net
22.03.07 - 14:40
Magnús Már Einarsson

Ögmundur Rúnarsson í markið hjá Gróttu (Staðfest)

Ögmundur Rúnarsson í markið hjá Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Ögmundur Viðar Rúnarsson hefur fengið félagaskipti í Gróttu úr þriðju deild og mun hann verja mark liðsins á komandi sumri.
Ögmundur sem verður þrítugur í ár lék með Fjölni í fyrstu deildinni síðastliðið sumar og eftir tímabilið lýsti hann því yfir að hann væri hættur í boltanum.

Hann hefur hins vegar núna ákveðið að leika með Gróttu í sumar. Ögmundur lék sextán leiki í fyrstu deildinni síðastliðið sumar þegar Fjölnir endaði í þriðja sætinu og fimmtán leiki í deildinni árið 2005.

Ögmundur gekk til liðs við Fjölni í mars árið 2005 en hann hafði áður verið í eitt ár hjá Val og þar áður hjá Víkingi.

Hann stóð sig vel í fyrstu deildinni með Fjölnismönnum í fyrra og var valinn bestur á lokahófi félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.