Fotbolti.net
22.03.07 - 15:31
Magnús Már Einarsson

Ríkharð Bjarni aftur í Fjölni (Staðfest)

Úr leik hjá Fjölni og HK síðastliðið sumar.

Úr leik hjá Fjölni og HK síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Ríkharð Bjarni Snorrason hefur gengið aftur til liðs við Fjölni en han lék síðast með Grafarvogsliðinu í fyrstu deildinni árið 2004.
Rikharð Bjarni sem verður 25 ára í ár lék þá alla leiki Fjölnis og nú hefur hann aftur gengið til liðs við fyrstudeildar félagið. Síðasta sumar lék Ríkharð þrjá leiki í VISA-bikarnum með Drangi.

Ríkharð mun keppa um markvarðarstöðuna hjá Fjölni við hinn unga og efnilega Þórð Ingason en Ögmundur Viðar Rúnarsson sem lék flesta leik liðsins í markinu síðastliðið sumar gekk í dag til liðs við Gróttu eftir að hafa verið í fríi frá boltanum í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.