22.03.10 - 08:35
Hafliði Breiðfjörð
Luis Fernandez tekur við Ísrael (Staðfest)

Luiz Fernandez.

Mynd: Getty Images

Luiz Fernandez.

Mynd: Getty Images
Frakkinn Luis Fernandez hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Ísraels og mun stýra liðinu út undankeppni EM 2012. Hann snýr því aftur til Ísraels þar sem hann stýrði Beitar Jerusalem í eina leiktíð.
,,Ég er mjög ánægður með að snúa aftur til Ísrael og það er frábær áskorun fyrir mig að koma Ísrael á Evrópumótið,\" sagði Fernandez í gær.
,,Það eru margir hæfileikamenn hérna og ég er viss um að liðið muni ná árangri. Ég þekki ísraelskan fótbolta, deildina og leikmennina. Ég sé að hægt er að bæta liðið og ná meiri árangri.\"
,,Ég veit að það er ekki auðvelt verkefni, en ég er viss um að liðið mun ná árangri.\"
Ísrael er í F-riðli með Króatíu, Grikklandi, Lettlandi, Georgíu og Möltu.

Heimild: Sporting Life