22.03.10 - 16:20
Hafliði Breiðfjörð
Ben Ryan Long í Njarðvík (Staðfest)

Ben Ryan Long í leik með Grindavík síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Enski varnarmaðurinn Ben Ryan Long sem lék með Grindavík á síðustu leiktíð er genginn til liðs við 1. deildarlið Njarðvíkur og hefur þegar fengið félagaskipti með sínu nýja félagi.
Long hafði komið til Grindavíkur á miðju sumri í fyrra og spilaði fjóra leiki með liðinu í Pepsi-deildinni.
Áður hafði hann verið í akademíu Hearts í Skotlandi þar sem hann spilaði einnig með varaliðinu og U19 ára liðinu. Hann er fæddur árið 1990 og er því 20 ára gamall á árinu.
Njarðvík kom upp úr 2. deildinni á síðustu leiktíð. Liðið hefur fengið til sín fimm leikmenn síðan þá. Það eru auk Long þeir Einar Helgi Helgason frá Þrótti Vogum, Haraldur Axel Einarsson og Kristinn Ingi Magnússon frá Víði og Viktor Guðnason frá Keflavík.
Þeir hafa misst Alexander Magnússon í Grindavík og Brynjar Óli Guðmundsson sneri aftur til Leiknis þaðan sem hann var í láni.